Katrín hittir samstarfsráðherra í Færeyjum 6. september 2010 14:22 Mynd: Anton Brink
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra situr fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Þórshöfn á Færeyjum á morgun. Á fundinum fer fram lokaumræða samstarfsráðherranna um tillögu að fjárhagsáætlun fyrir Norrænu ráðherranefndina 2011. Samkvæmt tillögunni yrði fjárhagsáætlun næsta árs 896.355 milljónir danskra króna og koma framlög til hennar beint frá norrænu ríkjunum. Einnig mun fara fram umræða um aðgerðir til þess að ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum á Norðurlöndum, en vonir eru bundnar við að aukið lagasamstarf og lagasamræming innan landanna geti komið í veg fyrir að nýjar hindranir verði til. Meðal þess sem nú er til skoðunar hjá nefnd á vegum ráðherranefndarinnar er gjaldtaka bankanna við millifærslur milli landanna, notkun kennitalna í netviðskiptum og sérstakt færslugjald á erlend kreditkort sem tíðkast í Danmörku. Á fundinum verða einnig rædd málefni norræna erfðalindabankans NordGen sem stofnaður var í byrjun árs 2008. NordGen fæst við rannsóknir á sjálfbærri notkun erfðalinda á Norðurlöndum en þær skipta miklu fyrir fæðuöryggi í framtíðinni. Rætt verður um framtíð þessa mikilvæga samstarfs og hvernig megi renna traustari stoðum undir það. Loks má nefna að fyrirhugað þing Norðurlandaráðs sem að þessu sinni verður haldið í Reykjavík er á dagskrá fundarins. Danir fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár, en á þinginu munu Finnar kynna formennskuáætlun sína sem kemur til framkvæmda 1. janúar 2011.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira