Samgönguráðuneytið fór ekki að lögum vegna tölvumála á Akranesi 30. júní 2010 14:11
Umboðsmaður Alþingis hefur gefið út álit um að samgönguráðuneytið hafi ekki farið að lögum hvað varðar úrskurð þess að tölvuþjónusta Akraness var ekki boðin út árið 2008. Áður hafði Kærunefnd útboðsmála gefið út það álit að bærinn hefði brotið lög, en hafði ekki heimild til þess að ógilda samning sem þegar hafði verið gerður. Þáverandi bæjarstjóri Akraness, Gísli S. Einarsson, hafnaði því alfarið að um einhverskonar lögbrot væri að ræða. Ástæðan fyrir því að málið var sent til umboðsmanns Alþingis er sú að Akraneskaupstaður samdi á síðasta ári við fyrirtækið Securstore um tölvuþjónustu án útboðs. Þetta þótti nokkuð umdeilt þar sem fyrirtækinu er stýrt af og er að hluta í eigu Arnars Gunnarssonar, en hann er sonur Gunnar Sigurðssonar, fyrrverandi forseta bæjarstjórnar Akraness. Til stóð að bjóða út verkið en meirihlutinn hætti við og samdi við Securestore. Í kjölfarið kvörtuðu bæjarfulltrúar minnihlutans til samgönguráðuneytis og vildu að ráðuneytið úrskurðaði úr um hæfi einstakra bæjarfulltrúa í málinu, það er að segja Gunnars, þá vildu þau einnig að ráðuneytið kannaði hvort ekki væri réttast að bjóða verkið út. Ráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu að ekki þyrfti að bjóða verkið út. Aftur á móti tók ráðuneytið ekki afstöðu til hæfis Gunnars. Í niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis kemur fram að samgönguráðuneytið hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög varðandi rannsóknarreglur. Að lokum beinir Umboðsmaður Alþingis þeim tilmælum til samgönguráðuneytis að það taki málið til endurskoðunar og fylgi sjónarmiðunum sem finna má í áliti Umboðsmanns Alþingis.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Fleiri fréttir „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Sjá meira