Innlent

Margir í slæmri skuldasúpu

frá fundinum Samtök stofnfjáreigenda í Byr voru stofnuð í síðustu viku. Fréttablaðið/Anton
frá fundinum Samtök stofnfjáreigenda í Byr voru stofnuð í síðustu viku. Fréttablaðið/Anton

Um tvö hundruð stofnfjáreigendur í sparisjóðnum Byr hafa stofnað grasrótarsamtökin Samtök stofnfjáreigenda sparisjóðsins. Tilgangur þeirra er að vinna að helstu hagsmunamálum stofnfjáreigenda Byrs og að viðhalda viðgangi og vexti stærsta sparisjóðs landsins.

Eitt af helstu viðfangsefnum félagsins er að gæta hagsmuna stofnfjáreigenda í tengslum við endurskipulagningu sparisjóðakerfisins og huga að slæmri fjárhagsstöðu margra stofnfjáreigenda sem skuldsettu sig við stofnfjárkaup undir árslok 2007, að því er segir í tilkynningu. - jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×