Innlent

ESA skilar niðurstöðu vegna gengisdóms innan þriggja mánaða

Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar
Gengisdómurinn féll á fimmtudaginn.
Gengisdómurinn féll á fimmtudaginn.

Hagsmunasamtök heimilanna gera ráð fyrir að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, muni skila áliti á niðurstöðu Hæstaréttar í bílalánamálinu og á víðtækri notkun verðtryggingar í íslenskum lánasamningum eftir um tvo til þrjá mánuði.

Samtökin hófu undirbúning að þessu í ágúst.

Hagsmunasamtök heimilanna telja dóm Hæstaréttar í bílalánamálinu ekki standast neytendaréttartilskipun Evrópusambandsins, þ.e. að dæma samningsvexti gengistryggðra lána ógilda og láta mun óhagstæðari vaxtakjör koma í staðinn.

Með því að velja gengistryggðu lánin voru lántakendur einmitt að forðast þá vexti sem nú eigi að gilda. Samtökin hyggjast bregðast við þessu.

Samtökin spá því að niðurstaða Hæstaréttar muni leiða til fleiri dómsmála. Í næstu málum verði látið reyna á forsendubrest lánanna.

Þá hafa þúsundir hafa verið í greiðsluverkfalli undanfarna mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×