Innlent

Böðvar Jónsson: Setjist niður og semjið svo fólkið fái atvinnu

Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar.
Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar.
Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir Suðurnesin búa við mesta atvinnuleysi á landinu og krefst þess að ráðamenn setjist niður og tryggi að framkvæmdir komist í gang.

Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segir ekki hægt að búa til lengdar við þá stöðu sem er í atvinnumálum á Suðurnesjum. Þar hafi atvinnuleysið verið allt of mikið og meira en að meðaltali í landinu.

Hann segir að annar ríkisstjórnarflokkurinn hafi ekki aðeins lagst gegn álversframkvæmdum heldur hindri fleiri verkefni. Hann nefnir sjúkrahús, sem rekið yrði af einkaaðilum, og flugþjónustuverkefni, sem menn vilji tengja við hernað.

„Menn finna ýmsar ástæður til að stöðva þetta. Vinstri grænir hafa lagt marga steina í götu þeirra verkefna, sem við höfum verið að undirbúa hér á Suðurnesjum," segir Böðvar.

Hann sendir stjórnvöldum en einnig forsvarsmönnum viðkomandi fyrirtækja þessi skilaboð:

„Setjist þið niður og farið að vinna. Ljúkið samningum svo við getum hafið framkvæmdir og fólkið hér fái atvinnu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×