Innlent

Bankarnir færa vinum húseignir á silfurfati

Sigurður Helgi Guðjónsson.
Sigurður Helgi Guðjónsson. Mynd/Arnþór Birkisson
Formaður Húseigendafélagsins fullyrðir að bankarnir séu að færa vinum og vandamönnum húseignir sem þeir leysi til sín á silfurfati til að fegra bókhaldið. Ástandið sé jarðvegur fyrir mikla spillingu.

Tortryggnin í garð bankanna er mikil þessa dagana, þeir eru að leysa til sín fjölda eigna sem síðan fara í sölu inn á frosinn fasteignamarkað. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram að Landsbankinn hefði nýverið selt skrifstofuhúsnæði við Grensásveg 12, sem á að breyta í hótel, á verði sem hefur verið fáheyrt hér undanfarin ár, á um 50 þúsund krónur fermetrann. Löggiltur fasteignasali, sem ekki kom nærri þessum viðskiptum, sem fréttastofa ræddi við taldi þó að í þessu fordæmalausa árferði væri þetta hugsanlega ásættanlegur samningur fyrir bæði bankann og kaupandann.

Sigurður Helgi Guðjónsson hæstaréttarlögmaður og formaður Húseigendafélagsins gagnrýnir bankana fyrir ógagnsæi við sölu húsnæðis sem þeir hafi leyst til sín. Hann óttast að bankarnir séu að lækka verð á fasteignum.

„Það er gott fyrir þá sem eru að kaupa en það er vont fyrir þá sem verða fyrir almennri verðlækkun. Bankarnir eiga vel að merkja allt húsnæði og ef þeir lækka almennt markaðsverð með þessum hætti þá fjarar undan þeirra eigin veðum," segir Sigurður og bætir við að bankarnir beiti „hókus pókus afskriftum."

„Þarna er jarðvegur fyrir mikla mismunun. Þarna er jarðvegur fyrir mikla spillingu sem beina mætti kastljósinu að," segir Sigurður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×