Innlent

Kjartan vill aukafund í OR um tillögur starfsmanna

Kjartan Magnússon, stjórnarmaður í OR.
Kjartan Magnússon, stjórnarmaður í OR.

Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur óskaði í dag eftir aukafundi í stjórn fyrirtækisins vegna yfirvofandi fjöldauppsagna.

„Ástæðan fyrir þeirri ósk er sú að þær upplýsingar hafa borist að nokkrir trúnaðarmenn starfsmanna OR hafi fyrir nokkru kynnt stjórnendum fyrirtækisins tillögur sínar um hvernig komast megi hjá fjöldauppsögnum með því að ná fram verulegum sparnaði með starfshlutfallsskerðingu," segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Þá segir að Kjartan telji það ámælisvert að umræddar tillögur hafi ekki verið kynntar fyrir stjórn fyrirtækisins. „Því er óskað eftir því að tillögurnar verði kynntar og ræddar í stjórn fyrirtækisins svo tryggt sé að hagræðingarvinna þess fari fram í sem bestri sátt við starfsmenn."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×