Hundur gómaði mink á Reykjanesi Boði Logason skrifar 22. október 2010 14:41 Josh kampakátur með bráðina í kjaftinum. Mynd/ÞH „
Það var skemmtilegt að lenda í þessu, sérstaklega miðað við það hvernig þetta endaði," segir Þröstur Halldórsson, hundaeigandi í Reykjanesbæ. Þröstur fór með Golden retriever-hundana sína tvo, Josh og Grace, í daglegan göngutúr í móanum á milli Innri-Njarðvíkur og Voga í síðustu viku. Í miðjum göngutúr fóru hundarnir tveir að elta eitthvað dýr, sem Þröstur hélt í fyrstu að væri mús, en síðar kom svo í ljós að það var minkur.Þvílíkt hvæs „Við erum búin að fara með hundana í göngutúr á hverjum degi í þrjú og hálft ár og ég hef aldrei lent í svona áður," segir Þröstur. „Við erum að ganga meðfram malarvegi og allt í einu tek ég eftir því að Josh og Grace fara að elta eitthvað út í móanum. Þegar þau eru komin í töluverða fjarlægð frá mér þá heyri ég allt í einu þvílíkt hvæs, ég vissi ekkert hvað það var," segir Þröstur sem lýstir hvæsinu sem mjög háu kattarhvæsi." „Mér datt í hug að þetta væri minkur og hljóp á staðinn til þeirra. Því ég hef heyrt þá sögu að minkar geta ráðist á hunda og dýr með því að bíta í trýnið á þeim. Mér var því ekki alveg sama ef þeir væru að kljást við mink út í móanum." Hann segir að hann hafi séð hundana tvo hafa náð góðu taki á minknum. „Svo sé ég Josh með hann í kjaftinum og hendir honum svona upp í loftið. Josh var svakalega ánægður með að hafa veitt minkinn og var með hann í kjaftinum svaka stoltur," segir Þröstur.Seldi ekki skinnið Þröstur segir að Josh sé búinn að vera elta mýs í allt sumar og finnist það rosalega skemmtilegt. „Hann er alveg fastur í músunum, þetta á ekkert eftir að bæta það," segir hann. „Ég hafði ekki það miklar áhyggjur af Josh því hann er svo vel þjálfur, ég hafði hins vegar meiri áhyggjur af Grace dóttur hans, sem er yngri og óreyndari." Aðspurður segist hann ekki hafa selt skinnið af minknum. „Ég er búinn að henda honum í ruslið, ég vildi ekkert vera halda í þetta." Hann segist hafa séð alls konar dýr í móanum svo sem kanínur, rjúpu, villiketti og grágæs. „Ég hef líka séð refaslóðir en aldrei séð ref." „Ég hef ekki þjálfað þá þannig að þeir eigi að elta lifandi bráð og drepa hana en ég á svo sem alveg von á því að þetta gerist aftur," segir Þröstur að lokum.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Sjá meira