Innlent

Alvarlegt umferðarslys við Sandskeið

Frá vettvangi.
Frá vettvangi.
Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi við Sandskeið skammt frá Bláfjallaafleggjara um níuleytið í morgun þegar tvær bifreiðar lentu saman sem komu úr gagnstæðum áttum. Farþegi í annarri bifreiðinni er slasaður en ökumenn bifreiðanna slösuðust ekki, að sögn lögreglu.









Mynd/ Kristófer.
Veginum var lokað um stund eftir slysið og eins og sést á meðfylgjandi mynd myndaðist töluvert umferðaröngþveiti á meðan unnið var á slysstað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×