Innlent

Gjábakkavegur algerlega ófær

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Laugavatnsvellir eru umflotnir vatni. Mynd/ Ingunn.
Laugavatnsvellir eru umflotnir vatni. Mynd/ Ingunn.
Þótt ekki hafi veirð sérstaklega mikill snjór á Gjabakkavegi sinntu félagar í björgunarsveitinni Ingunni tveimur útköllum við að bjarga föstum bílum þar í dag.

Björgunarsveitamenn segja að þrátt fyrir að vegurinn sé lokaður með slá og merktur lokaður á íslensku og ensku, láti fólk sér ekki segjast og freisti þess að elta för mikið breyttra fjallajeppa sem ekkert stoppi. Þótt bílar sleppi í gegnum snjóskaflana sé þar annar faratálmi. Laugarvatnsvellirnir séu nefnilega umflotnir vatni þessa dagana og ómögulegt að reikna út hvar vegurinn liggur. Leiðin hafi því ekki verið fær í dag nema fyrir fuglinn fljúgandi.

Einungis fáein ár eru síðan að björgunarsveitin Ingunn bjargaði tveimur mönnum af þaki bíls á þessum slóðum sem hafði tekið sénsinn en lent utanvega og á bólakaf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×