Innlent

Sundlaugarvörður bjargaði lífi gests í Sundhöllinni

Sundlaugarvörður í Sundhöllinni við Barónsstíg er talinn hafa bjargað lífi sundlaugargests, sem missti meðvitund í lauginni í gærkvöldi og sökk.

Vörðurinn varð þess var í tæka tíð, brá skjótt við og hóf lífgunaraðgerðir á meðan beðið var eftir sjúkraflutningamönnum.

Þegar þeir komu á vettvang var sundlaugargesturinn kominn til meðvitundar, en þeir fluttu hann á slysadeild og dvaldi hann á Landsspítalanum í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×