Ísland með 93 af 100 stigum 9. febrúar 2010 05:00 Landsvirkjun vekur athygli á rannsókninni á heimasíðu sinni enda hrein orka grundvöllur góðrar útkomu. fréttablaðið/gva
Ísland er í fararbroddi í mengunarstýringu og nýtingu náttúruauðlinda og því efst landa á lista yfir góða frammistöðu í umhverfismálum, segir í skýrslu sem bandarísku háskólarnir Yale og Columbia hafa nýverið sent frá sér og gefin er út á tveggja ára fresti. Í fréttatilkynningu frá háskólunum er rakið að hér á landi sé lítil mengun af gróðurhúsalofttegundum og orkan sjálfbær, bæði vatnsaflsorka og jarðhiti. Þá er skógrækt talin til kosta íslenskra umhverfismála. Í samanburði á milli landa nær Ísland 93,5 stigum af 100 mögulegum. Haft er eftir forstöðumanni hjá Yale að lönd sem taki umhverfismál alvarlega í stefnumörkun sinni hækki á listanum milli ára. Sem dæmi um þetta má nefna að Kosta Ríka er ofarlega vegna aðgerða til að vernda regnskóga, en Kólumbía vegna árangurs við að byggja upp sparneytið kerfi almenningssamgangna. New York Times greinir frá listanum og vekur athygli á að upplýsingar honum til grundvallar koma frá löndunum sjálfum og gætu því verið óáreiðanlegar. Það að Kúba sé í níunda sæti listans geti verið til marks um það. Á listanum eru Bandaríkin í 61. sæti listans og Kína númer 121. Danmörk er í 32. sæti. - shá
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira