Sumarlokanir leikskóla lengja biðlista 9. febrúar 2010 12:25 Oddný Sturludóttir.
Fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráði Reykjavíkurborgar furðar sig á að meirihlutinn hyggist lengja biðlista eftir plássi enn frekar með því að spara sér að ráða afleysingafólk í sumar. Hún efast um að sparnaðurinn skili sér. Eins og fram hefur komið eru 120 börn á biðlista eftir leikskólaplássi í Reykjavík í dag. Meirihluti borgarstjórnar ákvað að ráða ekkert sumarafleysingafólk á leikskólana nú í sumar og því verða engin ný börn tekin inn fyrr en í haust, en venjan hefur verið að börn séu tekin inn yfir sumarið eftir því sem plássin losna. „Þetta gerir það auðvitað að verkum að mjög langur biðlisti myndast í millitíðinni," segir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar , en hún á sæti í leikskólaráði borgarinnar. Þetta fyrirkomulag er aftur á móti heppilegt að mati Ragnars Sæs Ragnarssonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og starfandi formanns leikskólaráðs. „Ég held að það sé mjög eðlileg og góð leið að börn taki sumarleyfi á sama tíma og starfsfólk leikskóla." Áætlaður sparnaður af þessu eru 50 milljónir króna, en á móti kemur að fjöldi ungs fólks sem hefur fengið sumarvinnu á leikskólum þarf að leita annað, að mati Oddnýjar. „Einhvern veginn þurfum við að mæta þeim. Þannig að ég veit ekki hvort þetta sé í rauninni hagræðing sem skilar einhverju." Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að flokkarnir í borgarstjórn hafa á síðustu fjórum árum fengið 130 milljónir í styrki frá borginni, tæpar 30 milljónir á þessu ári sem er 60% af því sem sparast við að ráða ekki sumarstarfsfólk í leikskólana. Oddný telur sjálfsagt mál að skoða hvort borgin lækki styrki til flokkanna í ljósi ástandsins. „Ég get varla svarað svona spurningu og sérkennilegri. Hún er ekki svaraverð," segir Ragnar Sær aðspurður hvort hann telji að lækka eigi styrkina.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira