Eyrarrósin afhent á Bessastöðum í næstu viku 9. febrúar 2010 13:09
Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg - heimildarmyndahátíð á Patreksfirði. Með Eyrarrósinni fylgir fjárstyrkur að upphæð 1,5 milljónum króna og verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar. Hin verkefnin sem tilnefnd eru hljóta 200 þúsund króna framlag. Öll verkefnin hljóta að auki flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin og Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra flytur ávarp við athöfnina. Þá flytja tónlistarmennirnir Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson tónlist. „Eyrarrósin er veitt á ári hverju einu menningarverkefni á landsbyggðinni. Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Markmið Eyrarrósarinnar er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Auglýst er eftir umsóknum í fjölmiðlum ár hvert og eru umsækjendur meðal annars ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn. Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefnir og velur verðlaunahafa," segir í tilkynningu. Í fyrra hlaut Landnámssetrið í Borgarnesi Eyrarrósina en aðrir handhafar hennar eru Rokkhátíð alþýðunnar - Aldrei fór ég suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði. Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Listahátíð í Reykjavík 2010 verður haldin frá 12. maí til 5. júní 2010.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira