Sveitarfélögin ráða við flutning stofnana 9. febrúar 2010 05:00 Hugmyndin hefur verið rædd um nokkurt skeið innan sem utan HSS síðustu tvö ár. fréttablaðið/pjetur
Flutningur á rekstri heilbrigðisstofnana frá ríki til sveitarfélaga er að mati forsvarsmanna sveitarfélaganna og forstjóra heilbrigðisstofnana vel gerlegur og jafnvel til bóta. Hins vegar virðist þessi hugmynd ekki hafa verið rædd af alvöru víðar en á Suðurnesjum. Bæjarstjórn Reykjanessbæjar ályktaði í síðustu viku um málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Suðurnesjamenn telja sig hlunnfarna og hafa því viðrað þá hugmynd að taka yfir verkefni HSS eða hafa aðkomu að rekstrinum með beinum hætti. Er mat bæjarstjórnarinnar að annar stjórnunarstíll við rekstur heilbrigðismála en nú tíðkast geti haft hagræði í för með sér. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, er þeirrar skoðunar að sveitarfélögin í landinu geti almennt séð um verkefnið. Hann segir að miðpunkturinn verði áfram Landspítalinn sem stór eining til þjónustu við allt landið en í héruðum geti sveitarfélögin sinnt þessari þjónustu. Segir Árni að ráðuneyti heilbrigðismála sendi frá sér handahófskenndar ákvarðanir og stefnumótun sé ekki gerð til lengri tíma heldur að nokkru leyti háð duttlungum þeirra sem sitja í stól ráðherra á hverjum tíma. Þessu þurfi að breyta. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur tilfærsluna mögulega en hún hafi ekki verið rædd á þeim nótum sem umræðan hefur verið í tilviki Reykjanesbæjar innan sambandsins. „Þó var það rætt á Landsþingi okkar 2006, þegar mótuð var sú stefna sem sambandið vinnur eftir á kjörtímabilinu, í sambandi við flutning á nærþjónustu, að það næði ekki eingöngu til málefna fatlaðra og aldraðra, heldur mætti líka skilja það sem svo að það næði yfir málefni heilsugæslunnar.“ Halldór segir mörg sveitarfélög vera vel í stakk búin til að taka yfir rekstur heilbrigðisstofnana en það sé háð því að nægilegt fjármagn fylgi verkefninu frá ríkinu. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra sagði í viðtali við Fréttablaðið á fimmtudag að hún væri því almennt hlynnt að sem mest af nærþjónustunni væri sinnt af sveitarfélögunum. Hins vegar sé rekstur heilbrigðisstofnana utan lögbundinna verkefna sveitarfélaganna og þess vegna verði að spyrja hvort sveitarfélögin séu fjárhagslega í stakk búin til að sinna þjónustunni. svavar@frettabladid.is Halldór Halldórsson
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira