Útboð á mötuneyti Landspítala ógilt 9. febrúar 2010 04:00 Sælkeralausnir, sem fengu matsölu til starfsmanna Landspítalans í sinn hlut, uppfylltu ekki skilmála útboðs en tilboði Sláturfélagsins, sem uppfyllti skilmálana, var vísað frá. Fréttablaðið/Vilhelm
Bjóða þarf aftur út rekstur á mötuneyti Landspítalans segir kærunefnd útboðsmála sem kveður Ríkiskaup hafa brotið á Sláturfélagi Suðurlands með því að vísa frá tilboði fyrirtækisins í útboði í fyrra. Matsala fyrir starfsmenn Landspítalans var boðin út af Ríkiskaupum í júlí í fyrra. Sláturfélag Suðurlands var meðal bjóðenda en tilboði félagsins var vísað frá þar sem Ríkiskaup töldu það ekki stutt nægjanlegum gögnum um hæfi til að annast matsölu. Verkið kom í hlut Sælkeralausna, félags sem stofnað var í október 2008. Sláturfélagið átti lægsta tilboðið í útboðinu. Kærunefndin tók undir með þeim sjónarmiðum félagsins að tilboð þess hafi í raun uppfyllt skilmála útboðsins. Enn fremur tók kærunefndin undir með Sláturfélaginu að Sælkeralausnir uppfylltu ekki skilyrði útboðsins um að hafa að minnsta kosti tveggja ára reynslu að baki. Engu skiptu rök Ríkiskaupa um að „bjóðandinn á bak við“, Sælkeraveislur, uppfyllti skilyrðið eins og Ríkiskaup töldu fullnægjandi. Kærunefndin úrskurðaði Ríkiskaup til að greiða Sláturfélaginu 400 þúsund króna kostnað við kærumálið. Að auki eru Ríkiskaup skaðabótaskyld gagnvart Sláturfélaginu. - gar
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira