Innlent

Vegurinn liggi um Varmahlíð

Heimamenn óttast um verslun og aðra þjónustu fari þjóðvegur 1 ekki lengur um Varmahlíð.
Heimamenn óttast um verslun og aðra þjónustu fari þjóðvegur 1 ekki lengur um Varmahlíð.
Skipulagsnefnd Skagafjarðar er andvíg áformuðum flutningi hringvegarins þannig að hann liggi ekki lengur um Varmahlíð heldur frá Arnarstapa að Sólheimagerði.

Nefndin segir Varmahlíð mikilvæga þjónustumiðstöð fyrir íbúa. Fari hún úr alfaraleið verði líklega ekki rekstrargrundvöllur fyrir þjónustu og verslun sem þar er í dag.

„Á meðan ekki liggja fyrir áætlanir um hvernig þá verði unnt að tryggja þjónustu og verslun í þessum hluta sveitarfélagsins og samanburður á lagfæringu hringvegarins um Varmahlíð og fyrirliggjandi tillögu Vegagerðarinnar með tilliti til umferðaröryggis, mun sveitarfélagið Skagafjörður ekki breyta legu hringvegarins“, segir skipulagsnefndin.- gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×