Tvöfalt hagkerfi á Íslandi - vilja dollara og evrur allan sólarhringinn Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. október 2010 19:45
Tvöfalt hagkerfi á Íslandi hefur verið staðreynd um nokkra hríð, enda taka veitingahús og verslanir við erlendum gjaldeyri. Það er hins vegar nýmæli að verslanir auglýsi slíkt, en 10-11 verslanirnar segjast taka við dollurum og evrum allan sólarhringinn, alla daga. Það hefur tíðkast um árabil að veitingamenn taki við erlendum gjaldmiðlum slíkt hefur talist eðlileg þjónusta og kurteisi við fólk, t.d ferðamenn sem ekki hafa haft tök á því að fara í banka til að skipta eða nota ekki greiðslukort. Það er hins vegar sjaldgæfara að sérstaklega sé vakin athygli á því. En við verslun 10-11 í Lágmúla blasir við stór tilkynning í glugganum á enskri tungu að verslunin taki bæði við dollurum og evrum, allan sólarhringinn, alla daga ársins. En hvers vegna sér verslunin ástæðu til að auglýsa þetta með þessum hætti? „Helstu rökin fyrir því eru að þetta er ein algengasta spurningin hjá okkar viðskiptavinum," segir Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri 10-11 verslananna. Sigurður segir hjá þeim verslunum sem staðsettar séu nálægt hótelum tvöfaldist kúnnahópurinn yfir sumartímann vegna ferðamanna. Útlendingar noti mjög mikið seðla, enda sé kortavæðingin ekki komin jafn langt í mörgum öðrum ríkjum og hér á landi. Hversu stór hlut tekna ykkar er þá í dollurum og evrum? „Þetta er nú ekki eitthvað sem bjargar þjóðarbúinu. Þetta er á ársgrundvelli einhverjar milljónir, en engu að síður margar afgreiðslur og margar spurningar. Þannig að þetta er gert til einföldunar. Í ákveðnum tilvikum yfir sumartímann, eins og t.d í Austurstræti, eru sjötíu prósent okkar viðskiptavina útlendingar," segir Sigurður. En hvað verður um alla dollarana og evrurnar? „Þetta fer bara allt í íslenskan banka og þau gera eitthvað sniðugt við þetta."
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira