Meiri þekking við Grænland 5. janúar 2010 04:30 Katrín Júlíusdóttir Mynd/GVA
Meiri þekking á olíujarðfræðinni við Grænland en við Ísland er helsta skýring þess að olíuleitarfyrirtæki höfðu meiri áhuga á útboði Grænlendinga á sérleyfum til olíuleitar en útboði Íslendinga. Þetta kemur fram í svari iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur, við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar Framsóknarflokki. Olíuleit hefur staðið yfir við Grænland með hléum frá 1969 og hafa umsvifin sveiflast í takt við olíuverð. Frá árinu 1992 hafa verið haldin fjögur útboð á sérleyfum til olíuleitar og -rannsókna og tíu slík leyfi veitt. Þrettán umsóknir um þátttöku í útboði sem fram fer í maí liggja fyrir. Sem kunnugt er var í fyrsta sinn efnt til útboðs sérleyfa til olíuleitar á Drekasvæðinu við Ísland fyrir nokkrum mánuðum. Tvær umsóknir bárust en báðar voru dregnar til baka. Í svarinu kemur fram að ekki hafi enn fundist olía við Grænland í vinnanlegu magni, en ummerki um olíu hafi fundist í borkjörnum á landi. Þá segir að mikilvægt sé fyrir Íslendinga að halda áfram að byggja á reynslu nágrannaþjóða. Reynslan sýni að olíuleit sé langt ferli og að framgangur hennar tengist aðstæðum í heiminum á hverjum tíma.- bþs
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Fleiri fréttir Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Sjá meira