Nýr spítali: Stakkur sniðinn eftir vexti 9. júlí 2010 11:15 Svona kemur spítalinn til með að líta út þegar fyrsti áfangi er tibúinn.
Hönnunarteymið SPITAL varð hlutskarpast í samkeppni um áfangaskipt heildarskipulag fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut og frumhönnun 1. áfanga nýja spítalans og tengdrar háskólastarfsemi. Frá þessu var greint fyrir hádegið við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi í dag. Í SPITAL teyminu eru ASK arkitektar, Bjarni Snæbjörnsson arkitekt, Kanon arkitektar, Medplan, Teiknistofan Tröð, Landark, Efla verkfræðistofa, Lagnatækni og Norconsult. Í tilkynningu segir að ein af meginforsendum hönnunarsamkeppninnar hafi verið að flytja starfsemi Landspítala í Fossvogi að Hringbraut og ljúka þannig sameiningu stóru spítalanna á höfuðborgarsvæðinu. „Samkeppnin var tvíþætt og tók annars vegar til tillögu að áfangaskiptu skipulagi Hringbrautarlóðarinnar og hins vegar tillögu að frumhönnun 1. áfanga verkefnisins, sem samanstendur af spítalastarfsemi í 66.000 m² nýbyggingu og háskólastarfsemi í allt að 10.000 m² nýbyggingu." Sjö hönnunarteymi skiluðu umsóknum um þáttöku og var fimm stigahæstu teymunum boðin þátttaka í samkeppninni í febrúar 2010 og skiluðu þau tillögum sínum 10. júní 2010.Stakkur sniðinn eftir vexti „Nú hillir undir að framkvæmdir hefjist við eitt metnaðarfyllsta verkefni heilbrigðiskerfisins um langa hríð," sagði Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra við athöfnina í dag. Bygging nýs Landspítala hafi verið í burðarliðnum um árabil og áformin tekið miklum breytingum á þeim tíma. Mestu muni þar um efnahagshrunið haustið 2008 en í kjölfarið hafi þurft að endurskoða öll fyrri byggingaráform. „Fyrir vikið er sú hugmynd sem hér er kynnt talsvert smærri í sniðum og ekki eins ríkmannleg og lagt var upp með á tímum ofþenslu. Stakkur hefur verið sniðinn eftir vexti," sagði ráðherra.Spítalalóðin byggð upp sem „bæjarhverfi" Í tilkynningu segir ennfremur að við mat á tillögunum hafi dómnefndin lagt höfuðáherslu á heildarlausn, yfirbragð, ytri og innri tengsl, sveigjanleika og hagkvæmni. Nefndin leitaði auk þess álits innlendra og erlendra ráðgjafa. „Dómnefndin telur að allar tillögurnar séu metnaðarfullar og vel fram settar þar sem gamli spítalinn njóti sérstöðu sinnar. Það var hins vegar einróma niðurstaða nefndarinnar að velja tillögu SPITAL til að útfæra deiliskipulag og frumhanna byggingar 1. áfanga nýs Landspítala við Hringbraut." Í umsögn dómnefndar er vinningstillögunni lýst sem sterkri hugmynd og höfundar nái vel því markmiði sínu að skapa „bæjarsamfélag sem myndar ramma um þverfaglegt samstarf ólíkra greina". Orðrétt segir m.a. í niðurstöðu dómnefndar: „Sveigjanleiki starfseininga er góður vegna lögunar bygginga og stöðlunar þeirra. Svigrúmi til stækkunar er haldið með sveigjanleika „bæjarhverfis". Áfangaskipting hefur ekki í för með sér röskun á starfsemi spítalans á framkvæmdatíma. Með tilliti til stofnkostnaðar og rekstrar starfseminnar er tillagan metin hagkvæm." Rímar við Vatnsmýrarskipulagið Markmið um innra fyrirkomulag og tengingar næst í megindráttum í vinningstillögunni að áliti dómnefndar. Sjúklingahótel er ráðgert norðan við barna- og kvennadeild, í góðum tengslum við væntanlegan notendahóp. Rannsóknarstofum spítalans og háskólastarfsemi er komið fyrir í byggingum sunnan við nýju spítalabygginguna og gengur Læknagarður í endurnýjun lífdaga með nýbyggingum háskólahlutans. Þá er uppbygging háskólastarfsemi og Keldna til austurs á lóðinni í síðari áfanga verkefnisins sannfærandi að mati dómnefndar. Samkvæmt áætlunum verkefnisstjórnar, sem fékk heimild heilbrigðisráðherra til að vinna verkefnið áfram í framhaldi af viljayfirlýsingu við lífeyrissjóðina í nóvember 2009, ættu jarðvegsframkvæmdir að geta hafist sumarið 2011. Hér má fræðast nánar um verkefnið.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira