Innlent

Tími samninga að renna út

málin rædd Forystumenn flokkanna hafa nokkrum sinnum fundað um mögulega nýja samninga við Breta og Hollendinga um Icesave.
fréttablaðið/anton
málin rædd Forystumenn flokkanna hafa nokkrum sinnum fundað um mögulega nýja samninga við Breta og Hollendinga um Icesave. fréttablaðið/anton

Náist ekki samkomulag við Breta og Hollendinga um að taka upp viðræður vegna Icesave í vikunni gengur það tækifæri mönnum úr greipum. Það er mat þeirra stjórnmálamanna sem Fréttablaðið ræddi við. Fari svo, verði haldið óhikað í þjóðaratkvæðagreiðslu, en undirbúningur hennar hefur haldið áfram samhliða viðræðum við Breta og Hollendinga.

Málið er á viðkvæmu stigi, svo viðkvæmu að ekki er talað um viðræður á milli manna heldur þreifingar. Þær héldu áfram á laugardag, en eftir því sem Fréttablaðið kemst næst voru engir eiginlegir fundir haldnir á sunndag. Þá er öllum fregnum af viðræðum haldið í lágmarki og deiluaðilar stíga varlega til jarðar til að styggja ekki hver annan.

Líkt og Fréttablaðið greindi frá á laugardag munu Bretar og Hollendingar ekki sætta sig við annað en að Íslendingar greiði lágmarkstryggingu innstæðureikninga, 20.877 evrur. Þeir líti raunar svo á að Íslendingar hafi margoft skuldbundið sig til þess. Þá hafa þeir lagt á það áherslu að stjórnarandstaðan skuldbindi sig einnig samningunum, þeir verði ekki teknir upp eftir á vegna óánægju hennar.

Náist samstaða flokkanna hérlendis um að greiða lágmarkstrygginguna gætu viðræður hafist á ný.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×