Breyting útilokar orkukosti 6. júlí 2010 06:00 Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku. „
Þetta kann að hafa þau áhrif að allt Torfajökulssvæðið standi utan rammaáætlunarinnar. Þá erum við að tala um einn þriðja af öllum nýtanlegum jarðhita sem eftir er í landinu að mati Orkustofnunar," segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku. Textabreyting á frumvarpi iðnaðarráðherra um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða útilokar nýtingu á friðlýstum svæðum nema tiltekið sé í friðlýsingarskilmálum að virkjunarframkvæmdir séu heimilar á viðkomandi svæði. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er textabreytingin runnin undan rifjum Vinstri grænna og var sett sem skilyrði fyrir því að málið yrði afgreitt út úr þingflokkum stjórnarflokkanna. Frumvarpið var kynnt í ríkisstjórn í desember en var ekki lagt fyrir þingið fyrr en um miðjan júní. Þá mælti Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fyrir málinu í fjarvistum iðnaðarráðherra. Engar umræður urðu um frumvarpið og málið afgreitt til iðnaðarnefndar og annarrar umræðu. Gústaf Adolf segir að Samorka muni gera athugasemd við textabreytinguna enda sé verið að breyta leikreglum eftir á. „Verkefnisstjórnin er búin að vinna misserum saman út frá öðrum forsendum. Nú er fjöldi svæða ekki lengur með og vart annað að sjá en þetta lýsi vantrausti á vinnu verkefnisstjórnarinnar." Allur gangur er á því hvernig friðlýsingarskilmálum er háttað á ólíkum svæðum. „Þarna erum við að koma til móts við aðila sem töldu þetta betra fyrirkomulag, þó að ég sé annarrar skoðunar," segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. „Við vorum að mæta áhyggjum um að friðlýst svæði yrðu sett inn í nýtingarflokk. Þetta breytir ekki miklu þannig séð, nema að þessi svæði fara ekki í verndarflokkinn og færri svæði flokkuð sem slík fyrir vikið." Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir málið snúast um það að friðlýst svæði, og þau sem þegar eru innan þjóðgarða, komi ekki til álita við rammaáætlun. „Nýtingarsýnin hefur yfirskyggt aðra sýn á landnotkun á Íslandi. Við verðum að hafa það hugfast að þessi lög sem hér um ræðir verða ekki sett yfir önnur lög um náttúruvernd." - shá
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Innlent Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira