Innlent

Einn af hverjum sjö körlum hafa farið á Vog

Mynd: SÁÁ

Fjórtán prósent karla á aldrinum 60 til 70 ára hafa farið í áfengismeðferð á Vogi og sex prósent kvenna á sama aldri. Þeir sem eru látnir, jafnvel úr áfengissýki, eru ekki taldir með. „Það er því von að spurt sé við hverju megum við búast þegar kannabis- og amfetamínkynslóðirnar eru komnar á sama aldur," ritar Þórarinn Tyrfingsson í nýjum pistli á vef SÁÁ.

„Íslendingar sem fæddir eru 1940-1950 drukku miklu meira áfengi en foreldrar þeirra, einkum karlmennirnir. Þeir höfðu engin tækifæri til að nota ólögleg vímuefni því þau voru ekki komin til landsins. Áfengið varð því þeirra eina vímuefni. Þeir urðu röskir skemmtanadrykkjumenn og sóttu öldurhúsin stíft um helgar og orð fór af þeirra fylliríum í Skandinavíu og í sólarströndum. Þeir voru búnir að auka áfengisneyslu landsmanna um heilan lítra af hreinum vínanda á mann fyrir tvítugt. Þegar þeir komust á þing og til valda brutu þeir niður bindindisstefnuna og léttu hömlum á dreifingu, sölu og neyslu áfengis."

Þórarinn bendir á að mörg þessara lýðveldisbarna hafi leitað sér áfengismeðferðar um þrítugt og hafa síðustu ár sótt á Vog í auknum mæli vegna dagdrykkju.

„Aðal æskublóminn er nú af þessu fólki farin og áfengi miklu hættulegra en áður. Það er því í mikilli hættu að hljóta af drykkjunni tauga- og heilaskaða og fylgikvilla í lifur og bris. Drykkja þeirra sem áður olli slysum og aukinni þörf fyrir löggæslu veldur nú vaxandi kostnaði fyrir heilbrigðisstofnanir," segir Þórarinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×