Hætt við að bjóða upp heimili á síðustu stundu: „Ég er ekki reið“ Ingimar Karl Helgason skrifar 6. október 2010 18:36
Til stóð að selja íbúð þriggja barna einstæðrar móður á nauðungaruppboði í Hafnarfirði í dag. Konan var um tíma í þremur vinnum til að sjá fyrir sér og börnum sínum. Hún beið í angist, inni í húsinu sem hún er að missa, í meira en klukkustund, áður en hún frétti að uppboðið hefði verið afturkallað. Konan á þrjú börn, eitt á unglingsaldri en tvö yngri. Hún keypti húsið í byrjun árs 2007. Hún seldi íbúð sína á góðum tíma, og og keypti húsið í Hafnarfirði, og fékk sextíu og fimm prósent af kaupverðinu að láni. Annað var hennar eigið fé. Hún fékk erlent lán; sem upphaflega nam 26 milljónum króna, og gerði ráð fyrir sveiflum, en höfuðstóllinn fór upp í 70 milljónir, þegar mest var. Og greiðslubyrðin hækkaði. „Ég hef aldrei staðið í þessum sporum áður," sagði konan sem kemur ekki fram undir nafni. Hún segist ekki vita hverju hún eigi að búast við eða hvort hún geti haldið andlitnu. Konan keypti húsið árið 2007, stór hluti þess var myntkörfulán. Hún segist hafa gert ráð fyrir sveiflum en ekki hruni. En hvernig hefur lífið verið? Hefur hún sofið á nóttunni? „Nei, ekki alltaf, maður tekur einn dag í einu, svo tekur maður einn klukkutíma í einu. það fer samt enginn svangur í rúmið," segir konan. Aðspurð hvort hún sé reið svarar hún því að hún sé það ekki. „Ég á bara nóg með mig sjálfa," sagði hún svo. Svona mál eru ekkert einsdæmi. Í þessum mánuði einum á að bjóða upp 250 íbúðir þar sem fólk á heimili. Uppboðsbeiðnir á árinu nálgast tvö þúsund. Í ljós kom að uppboðið hafði verið afturkallað en konan var ekki látin vita fyrirfram. „Mér finnst þetta algjört tillitsleysi, ég þurfti að slíta mig frá vinnu. Ég veit ekki hvað ég á að segja," sagði konan sem fékk óvæntan gálgafrest. En hvað skýrir þetta svo? Sýslumaðurinn svarar engu. Landsbankinn segist vera að afturkalla uppboðsbeiðnir þar sem um sé að ræða erlend lán. Eftir því sem næst verður komist, átti að halda þetta uppboð vegna innlendrar skulda, en á síðustu stundu ráku menn augun í erlent lán, og því var málinu frestað.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Sjá meira