Dýrafjarðargöng aftur á blað 20. júní 2010 18:34
Dýrafjarðargöng hafa á ný verið sett inn á samgönguáætlun Alþingis. Fjárveiting dugar þó ekki til framkvæmda heldur er litið á hana sem táknræna yfirlýsingu þingsins um að þessi göng séu enn á dagskrá.Hin 550 metra háa Hrafnseyrarheiði er helsti farartálminn á milli íbúa á sunnanverðum og norðanverðum Vestfjörðum. Vestfirðinga hefur því lengi dreymt um að þessi hrikalegi vegur verði leystur af hólmi með jarðgöngum á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Gangamunnar yrðu annarsvegar skammt innan við Dýrafjarðarbrú og Arnarfjarðarmegin rétt utan við Mjólkárvirkjun, sem fæli í sér 27 kílómetra styttingu á Vestfjarðavegi.Fyrrverandi samgönguráðherra markaði raunar þá stefnu fyrir fjórum árum að vinna við Dýrafjarðargöng skyldi hefjast árið 2011. Eftir hrun efnahagslífsins hafa áform um ný jarðgöng verið sett í biðstöðu og í samgönguáætlun, sem núverandi samgönguráðherra lagði fyrir Alþingi í vetur, var ekki minnst á Dýrafjarðargöng. Einu göngin sem fengu náð hjá stjórnvöldum voru ný Norðfjarðargöng á Austfjörðum, í stað Oddsskarðsganga, með 1.500 milljóna króna byrjunarframlag árið 2012.En nú eru Dýrafjarðargöng aftur komin á blað því við afgreiðslu samgönguáætlunar frá Alþingi síðastliðinn þriðjudag var bætt inn tíu milljóna króna framlagi næstu tvö árin til undirbúningsvinnu. Í samgöngunefnd Alþingis er litið á þetta sem táknrænt framlag, sem viljayfirlýsingu þingsins um að Dýrafjarðargöng séu ennþá á dagskrá. Hvenær það verður gæti svo skýrst í haust þegar samgönguráðherra kynnir næstu langtímaáætlun til tólf ára.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira