Innlent

Íslenskur læknir til Haítí

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Friðbjörn Sigurðsson læknir ætlar til Haítí. Mynd/ Pjetur.
Friðbjörn Sigurðsson læknir ætlar til Haítí. Mynd/ Pjetur.
Friðbjörn Sigurðsson læknir fer á morgun til Haítí þar sem hann mun starfa með læknateymi þýska Rauða krossins í einn mánuð. Friðbjörn vann á sjúkrahúsi á Haítí í tvo mánuði fyrir tæpum 20 árum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Rauða krossinum.

Friðbjörn fer með flugvél á vegum utanríkisráðuneytisins sem fer þangað til að sækja íslensku alþjóðabjörgunarsveitina. Hjálpargögn sem Alþjóða Rauði krossins hefur sérstaklega beðið Rauða kross Íslands um að útvega fara einnig með flugvélinni.

Um er að ræða 1.000 skyndihjálparpakka sem sjálfboðaliðar Rauða krossins pökkuðu í gær, loftkælibúnaður fyrir skurðstofur, dísilrafstöðvar og annar sjúkrabúnaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×