Sýnir og gefur myndir án leyfis höfundanna 6. október 2010 06:00 Sigurður Ó. Sigurðsson segist hafa tekið ljósmyndina sem hér er sýnd útdregin og stækkuð úr verkinu sem Ólafur Elíasson gaf þjóðinni og sýnir hrakninga ökumanna í ýmsum íslenskum vatnsföllum.Fréttablaðið/Vilhelm
Ljósmyndir eftir tvo myndasmiði sem eru í verki Ólafs Elíassonar, Cars in Rivers, eru notaðar án heimildar höfundanna. Þær myndir eru úr albúmi sem skálaverðir Ferðafélags Íslands í Langadal í Þórsmörk settu saman. „Ég gaf Ferðafélaginu eintök af myndunum mínum í albúmi en það er ekki þar með sagt að ég hafi gefið þeim leyfi til að framselja þær hverjum sem er. Það hlýtur að vera sá sem fær verkið á endanum sem hlýtur að bera ábyrgð á því að fá leyfin. Aldrei dytti mér í hug að taka mynd eftir annan mann og búa til annað verk úr henni og gefa án þess að spyrja um leyfi," segir Sigurður Ó. Sigurðsson, áhugaljósmyndari og fyrrverandi skálavörður, sem tók eina myndanna fyrir um tíu árum. „Við erum með þessar myndir á heimasíðunni okkar. Ólafur sá þær þar og fékk þær hjá okkur," segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Páll segist ekki vita hver hafi tekið umræddar myndir eða eigi höfundarréttinn að þeim. Ekki hafi verið reynt að kanna hverjir myndasmiðirnir væru. „Það hefði verið langsótt að finna út úr því hver tók þær," segir hann. Sigurður segir hins vegar að ekkert mál hafi verið að finna myndasmiðina. „Ég til dæmis veit hver tók nánast allar myndirnar í þessari möppum. Mér finnst þetta bara léleg vinnubrögð," segir Sigurður. Auk myndar Sigurðar er Fréttablaðinu kunnugt um að minnsta kosti fjórar myndir úr Ferðafélagsalbúminu sem eru í verki Ólafs án þess að leyfi hafi verið gefið. Ekki náðist í höfund þeirra mynda. Cars in Rivers byggir á 35 ljósmyndum af bílum í hrakningum í íslenskum ám. Oftast sendu ljósmyndararnir myndirnar inn sjálfir að áeggjan Ólafs, að sögn Barkar Arnarsonar hjá I8 galleríi sem vann að verkefninu með Ólafi. Börkur segir einkennilegt að einhverjir telji að myndir þeirra séu notaðar í óleyfi. „Það er náttúrlega mjög óheppilegt ef félög hafa sent okkur myndir sem þau hafa ekki rétt á að láta okkur hafa. Það var öllum gert mjög skýrt til hvers myndirnar voru ætlaðar og að Ólafur hygðist gefa Listasafni Íslands verkið," segir Börkur og hvetur viðkomandi ljósmyndara til að hafa samband. „Allir þeir sem eiga mynd í verkinu fá signerað verk frá Ólafi eins og um var talað þannig að ég hvet þetta fólk til að leita til okkar," segir Börkur, sem kveður Ólaf vilja taka það fram að ef viðkomandi ljósmyndari sé óáægður með að hafa mynd sína í verkinu sé ekkert mál að fjarlægja hana. „Ef Ólafur er að biðja mig um leyfi fyrir að nota myndina þá gef ég það - eins og ég hefði alltaf gert ef ég hefði bara verið beðinn," svarar Sigurður Ó. Sigurðsson. gar@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira