Innlent

Fimmtungur ók of hratt í Mosfellsbænum

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í norðurátt, við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 107 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.

Hraðakstur í Hafnarfirði

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Öldugötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldugötu í austurátt, á milli Ölduslóðar og Öldutúns. Á einni klukkustund, síðdegis, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar á Öldugötu var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×