Innlent

Tvö ár frá því að Geir bað guð um að blessa Ísland

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Geir Haarde mælti fyrir neyðarlögunum fyrir nákvæmlega tveimur árum. Mynd/ GVA.
Geir Haarde mælti fyrir neyðarlögunum fyrir nákvæmlega tveimur árum. Mynd/ GVA.
Tvö ár eru í dag síðan að neyðarlög vegna bankahrunsins, sem þá var yfirvofandi, voru sett. Geir Haarde forsætisráðherra flutti sjónvarpsávarp eftir hádegi þann daginn og klykkti út með því að biðja guð um að blessa Ísland. Hann mælti svo fyrir frumvarpi að lögunum á þingfundi. Frumvarpið var svo samþykkt seint um kvöldið.

Björgvin G. Sigurðsson, sem þá var viðskiptaráðherra sagði í þingræðu að hann væri sannfærður um að þeim heimildum sem lagðar voru til í frumvarpinu myndi ekki þurfa að beita í ölllum tilfellum og sagðist hafa trú á því að sumir bankanna myndu rífa sig í gegnum storminn. Hann sagði að nú horfðu við á fordæmislausar efnahagslegar hamfarir sem riðu yfir heimsbyggðina, og felldi banka tugum saman um allan heim.

Í frumvarpinu fékk Fjármálaeftirlitið víðtækar heimildir, meðal annars til þess að taka yfir rekstur viðskiptabankanna þriggja. Þeir voru allir þjóðnýttir skömmu eftir að neyðarlögin voru sett.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×