Innlent

Lagt til að 35 fái ríkisborgararétt

Mynd/GVA
Allsherjarnefnd Alþingis leggur til að 35 einstaklingar frá 17 löndum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur á yfirstandi þingi. Elsti einstaklingurinn er fæddur 1936 og sá yngsti 1996.

Í hópnum eru fimm Bandaríkjamenn og fimm Pólverjar. Þar eru einnig einstaklingar fæddir í Marokkó, Nepal, Filippseyjum, Rússlandi, Serbíu, Víetnam, Mexíkó, Egyptalandi, Perú, Svíþjóð, Íran, Rúmeníu, Tadsjikistan og Írak.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×