Innlent

Bekkjum forðað tímabundið

Starfsmenn borgarinnar fjarlægðu garðbekki af Austurvelli til að þeir yrðu ekki skemmdir.Fréttablaðið/Vilhelm
Starfsmenn borgarinnar fjarlægðu garðbekki af Austurvelli til að þeir yrðu ekki skemmdir.Fréttablaðið/Vilhelm
Starfsmenn Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar fjarlægðu í gær nokkra garðbekki af Austurvelli. Sjö bekkir voru bornir á bálið á mótmælunum síðastliðið mánudagskvöld og því var ákveðið að fjarlægja þá sem eftir voru tímabundið, til að fyrirbyggja frekari skemmdir.

Í samtali við Fréttablaðið sagði talsmaður umhverfissviðs að kostnaður við hvern bekk, með uppsetningu, væri 130.000 krónur. Þá námu skemmdir á grasi um 200.000 krónum.- þj



Fleiri fréttir

Sjá meira


×