Kjalnesingagoði: Þjóðernissinnar misnota sólkrossinn Erla Hlynsdóttir skrifar 6. október 2010 09:35 Frá þingblóti Ásatrúarfélagsins á Þingvöllum í sumar. Þarna er Jóhanna Harðardóttir, ásamt öðrum goðum, lögsögumanni og fánaberum Ásatrúarfélagsins í Almannagjá rétt fyrir helgun blótsins. Sólkrossinn er þarna í öndvegi.
Jóhönnu Harðardóttur, Kjalnesingagoða Ásatrúarfélagsins, var brugðið þegar hún komst að því að svokallaðir þjóðernissinnar notuðu fána með sólkrossinum í mótmælunum við Alþingishúsið á mánudag. „Mér var verulega brugðið þegar ég sá þar fána með ævafornu trúartákni heiðinna manna, sólkrossinum. Því miður setti strax að mér illan grun þar sem ég vissi að enginn úr okkar hópi mundi bera sólkrossinn við pólitískar aðstæður sem þessar,“ segir hún. Sólkrossinn er ævafornt tákn hins eilífa hringferils náttúrunnar. „Hann er einnig tákn um höfuðáttir og frumkrafta jarðarinnar og hefur ekkert með rasisma og öfgasinnuð hægriöfl að gera,“ segir Jóhanna. Áhyggjufullir ásatrúarmenn Daginn eftir mótmælin komst hún að því að fleira ásatrúarfólk væri bæði áhyggjfullt og sárt vegna atviksins. Tveir sólkrossar sáust í mótmælunum. Annar á svörtum grunni, en hinn á rauðum og hvítum og báðir bornir af fólki sem kallar sig þjóðernissinna. Jóhanna telur líklegt að þjóðernissinnarnir séu hluti af „White Pride Worldwide“-hreyfingunni. „Málflutningur hennar er í engu samhengi við anda sólkrossins þótt þeir hafi leyft sér að misnota þetta forna trúartákni,“ segir hún. Með sólkrossinn um hálsinn Hún bendir á að fjöldi ásatrúarmanna á Íslandi gangi með sólkrossinn um hálsinn og þyki þeim afar slæmt að vera mögulega taldir kynþáttahatarar vegna notkunar þjóðernissinna á þessu forna tákni. Hún segir illt til þess að vita að íslenskir þjóðernissinnar skuli leyfa sér að halda áfram þeirri svívirðu sem Hitler hóf, að taka trúarleg heiðin tákn og nota í málflutningi sínum sem á ekkert skylt við merkingu táknanna, sambanber sólkrossinn í þessu tilviki. Það merki sem Hitler gerði hvað þekktast var hakakrossinn en sem kunnugt er var sá kross einnig tengdur sólinni í fornri trú. Sárara en tárum taki „Það er sárara en nokkrum tárum taki að sjá sólkrossinn borinn í pólitískum tilgangi af þjóðernissinnum á Íslandi. Ekkert okkar heiðinna manna vill þurfa að snúa bakinu við þessu helga trúartákni aðeins vegna þess að þjóðernissinnar hér á landi hafa kosið að fela sig bak við tákn sem þeir hafa annað hvort misskilið heiftarlega eða hreinlega stolið samviskulaust,“ segir Jóhanna. Hún leggur mikla áherslu á að uppfræða fólk um raunverulega merkingu sólkrossins. „Við vonumst til þess að öfgasinnum takist ekki að koma illu orði á þetta fagra tákn með misnotkun sinni,“ segir hún.
Tengdar fréttir Fasískir fánar og jarðvegur fyrir lýðskrumara Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir upplausnarástand ríkja í íslenskum stjórnmálum og bendir á að ríkisstjórnin hefur ekki haft meirihluta fyrir stefnumálum sínum á Alþingi. „Það er líklega það sem mun sprengja þessa ríkisstjórn og enda þessa fyrstu vinstri stjórn landsins. Það er auðvitað svolítið kaldhæðnislegt ef það á að vera vinstri armur Vinstri grænna sem á endanum sprengir fyrstu stjórn landsins," segir hann. 5. október 2010 10:28 Þjóðernissinnar útiloka ekki framboð Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir er ein þeirra sem mótmælti undir merkjum hvítra þjóðernissinna á mótmælum á Austurvelli í gær og er aðili að samtökunum Blóð og Heiður. Hún sakar mótmælendur sem gerðu aðsúg að fólki með nasistafána eða þjóðernismerki um að vera líkt og hugsanalögregla. 5. október 2010 18:30 Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira
Fasískir fánar og jarðvegur fyrir lýðskrumara Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir upplausnarástand ríkja í íslenskum stjórnmálum og bendir á að ríkisstjórnin hefur ekki haft meirihluta fyrir stefnumálum sínum á Alþingi. „Það er líklega það sem mun sprengja þessa ríkisstjórn og enda þessa fyrstu vinstri stjórn landsins. Það er auðvitað svolítið kaldhæðnislegt ef það á að vera vinstri armur Vinstri grænna sem á endanum sprengir fyrstu stjórn landsins," segir hann. 5. október 2010 10:28
Þjóðernissinnar útiloka ekki framboð Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir er ein þeirra sem mótmælti undir merkjum hvítra þjóðernissinna á mótmælum á Austurvelli í gær og er aðili að samtökunum Blóð og Heiður. Hún sakar mótmælendur sem gerðu aðsúg að fólki með nasistafána eða þjóðernismerki um að vera líkt og hugsanalögregla. 5. október 2010 18:30