Blésu lífi í flogaveikan mann 6. október 2010 05:15 Bjarni sundlaugarvörður og gestir Sundhallarinnar björguðu manni frá drukknun í gær. Fréttablaðið/gva „
Maðurinn var orðinn alveg blár þegar þeir komu með hann upp úr. Svo blésu þeir lífi í hann. Það var algjör unaður að sjá fólkið að störfum, það gerði allt rétt,“ segir Birkir Guðjónsson sundlaugargestur. Maður á þrítugsaldri var hætt kominn í Sundhöll Reykjavíkur á mánudagskvöld. Maðurinn, sem er flogaveikur, hafði stokkið af stóra brettinu ofan í laugina. Þar fékk hann kast og komst ekki upp af sjálfsdáðum. Sundlaugargestir og starfsmenn sundlaugarinnar brugðust skjótt við og náðu manninum upp á bakkann. Maðurinn hafði stífnað og því reyndist það þrautin þyngri að ná honum upp. „Við byrjuðum að hnoða hann og þegar hann byrjaði að æla gáfum við honum súrefni. Það var læknir á staðnum sem sagði að hann hefði í raun verið farinn. Það var heppni að við skyldum ná honum svona fljótt upp úr og geta byrjað í hvelli,“ segir Bjarni Valtýsson sundlaugarvörður, sem blés lífi í manninn. Birkir sundlaugargestur segir að þegar sjúkraliðar hafi komið á vettvang hafi starfsfólk sundlaugarinnar spurt hvort þeir vildu taka við að hnoða manninn. „En sjúkraflutningamennirnir sögðu þeim bara að halda áfram því þeir voru að gera allt rétt,“ segir Birkir. Jón Gnarr borgarstjóri kom í Sundhöllina í gær til að sýna Bjarna og öðrum bjargvættum þakklæti sitt. „Mér finnst þetta skýrt dæmi um kosti og mikilvægi þess að vera vakandi fyrir umhverfinu og öðru fólki í kringum mann,“ segir Jón. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans er líðan mannsins eftir atvikum góð. Hann er á batavegi.-kh
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira