Innlent

Botninum náð síðar á þessu ári

Hagkerfið á síðasta ári var 100 milljörðum króna stærra en spár gerðu ráð fyrir að sögn Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Hann telur allar líkur á því að botni kreppunnar verði náð síðar á þessu ári.+

Ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir aðgerðarleysi varðandi atvinnumál og skuldavanda heimilanna.

Atvinnuleysi er nú í sögulegu hámarki og margt bendir nú til þess að samdráttur verði meiri á þessu ári en spár gerðu ráð fyrir. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, telur þó að botni kreppunnar verði náð síðar á þessu ári. „Árið 2009 kom betur út og horfurnar eru betri en við reiknuðum með," segir Steingrímur sem bendir á að umtalsverður árangur hafi náðst umfram áætlanir, bæði í því að draga úr kostnaði en tekjuöflun gekk einnig mjög vel. „Hagkerfið dróst umtalsvert minna saman en spáð var en það var um 100 milljörðum stærra en við höfðum reiknað með og það munar um minna," segir ráðherrann.

Ríkisstjórnin fundaði í gær með aðilum vinnumarkaðarins og kynnti þar meðal annars aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir nauðsynlegt að leysa Icesave deiluna til hægt verði að koma hjólum hagkerfisins aftur af stað. „Auðvitað eru menn óþolinmóðir og vilja að stýrivextir lækki hraðar og að gjaldeyrishöft verið afnumin fyrr en það hangir meðal annars á lausn á Icesave málinu," segir Jóhanna og bendir á að menn hafi fullan skilning á því. „Ríkisstjórnin er að vinna með þessi atvinnumál og ég vona að við getum á næstunni sýnt hvað við erum að gera þar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×