Magnús Tumi: Gosið að öllum líkindum búið Kristján Már Unnarsson skrifar 13. apríl 2010 11:42 Mynd tekin í gær af gosstöðvum á Fimmvörðuhálsi. Mynd/Hörður Vignir Magnússon
Flest bendir til að eldgosinu á Fimmvörðuhálsi sé lokið, að minnsta kosti í bili. Síðdegis í gær var hætt að krauma í gígnum, sem enn var lifandi fyrr um daginn, og um svipað leyti hættu mælar að sýna minnstu merki um gosóróa.Rigningarsuddi og dumbungur var yfir Fimmvörðuhálsi í morgun en síðustu lýsingar sjónarvotta af eldstöðinni eru frá því síðdegis í gær og í gærkvöldi. Þá flugu þyrluflugmenn yfir og lentu við svæðið, og segir Sigurður Pálmason hjá Þyrluþjónustunni, sem var þarna um hálffimmleytið, að þá hafi ekkert gos verið í gangi. Hætt var að bubbla í gígnum sem kraumaði fyrr um daginn. Þeir sáu reyndar niður í kviku í gegnum op á stóra gígnum djúpt niðri í nýju sprunginni þegar flogið var þar beint yfir en engin hreyfing var á kvikunni.Jón Kjartan Björnsson, þyrluflugmaður hjá Norðurflugi, sá heldur ekkert gos í gangi um áttaleytið í gærkvöldi en sá þó niður í kvikuna í gegnum gígopið. "Mér sýnist gosið vera búið, því miður," sagði Jón Kjartan í morgun, og bjóst við að fljúga á svæðið eftir hádegi, en þar er nú að birta til.Gosórói á mælum Veðurstofunnar var þegar í fyrradag orðinn mjög lítill en frá því um kvöldmatarleytið í gær hefur ekkert sést, að sögn Bergþóru Þorbjarnardóttur jarðeðlisfræðings. Þá sýna GPS-mælar að þensla Eyjafjallajökuls er að ganga til baka.Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir að gosið sé að öllum líkindum búið. Ekki sé þó hægt að gefa út dánarvottorð fyrr en sjúklingurinn sé örugglega skilinn við og menn geti ekkert sagt um það hvort atburðarásin haldi áfram og gosið taki sig upp aftur.Tveir hópar vísindamanna frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands eru nú á leið á svæðið, báðir fótgangandi úr Þórsmörk. Annar fer upp á Morinsheiði og mun væntanlega skoða gígana og hraunið þar en hinn er á leið inn Hvannárgil til að skoða hraunið þar og meta gasútstreymi.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Sjá meira