Innlent

Erfitt að tryggja atvinnuöryggi

Menntamálaráðherra segir mikilvægt að styrkja réttarstöðu blaðamanna. Fréttablaðið/anton
Menntamálaráðherra segir mikilvægt að styrkja réttarstöðu blaðamanna. Fréttablaðið/anton
Erfitt er að tryggja atvinnuöryggi blaðamanna, nema með auknum styrkjum til fjölmiðla, en í nýju frumvarpi til fjölmiðlalaga verður reynt að bæta réttarstöðu þeirra. Meðal annars á þá að verða úr sögunni að blaðamenn séu dæmdir fyrir orð viðmælenda sinna.

Þetta segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, en hún var spurð hvort og hvernig hún ætlaði tryggja atvinnuöryggi blaðamanna. Katrín var spurð í ljósi nýlegrar ályktunar flokksráðsfundar VG, sem sagði að blaðamönnum yrði að vera tryggð „uppsagnarvernd" með lögum.

Í Bandaríkjunum hefur verið rætt um að styrkja fjölmiðlun með skattaafsláttum og ívilnunum fyrir fjölmiðla sem ekki eru reknir í hagnaðarskyni, Obama Bandaríkjaforseti mun til að mynda vera að skoða slíkar leiðir.

Katrín segir þessar hugmyndir áhugaverðar og „gætu ýtt mjög undir óháða blaðamennsku sem ég held að allir séu sammála um að megi styrkja".

Ráðherrann er einnig að velta fyrir sér hugmyndum um sérstakan blaðamennskusjóð, svipaðan kvikmyndasjóði, sem „blaðamenn gætu sótt í til sjálfstæðra rannsóknarverkefna, það myndi styrkja grasrótarfjölmiðlun," segir Katrín. - kóþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×