Fjárdráttur nemur þriðjungi af sóknargjöldum Ingimar Karl Helgason skrifar 12. október 2010 12:08
Fjárdrátturinn í Hvítasunnukirkjunni nemur um þriðjungi af öllum sóknargjöldum sem safnaðarmeðlimir hafa greitt undanfarin sex ár. Fyrrverandi framkvæmdastjóri sem hefur játað fjárdráttinn, segist ekki vita hvort hann geti endurgreitt, en kirkjan krefst bóta. Honum verður fyrirgefið, segir talsmaður Hvítasunnukirkjunnar. Upp hefur komist um 25 milljóna króna fjárdrátt hjá Hvítasunnukirkjunni hér á landi. Fyrrverandi framkvæmdastjóri hefur játað að hafa dregið sér féð á sex ára tímabili. Um tvö þúsund manns eru í hvítasunnukirkjunni, en hún starfar víða um land. Sóknargjöld til kirkjunnar hafa verið upp undir fimmtán milljónir króna á ári; ef við miðum við þetta ár. Í allt hafa safnaðarmeðlimir greitt milli áttatíu og níutíu milljónir króna í sóknargjöld á þessum árum. Fjárdrátturinn nemur því um þriðjungi af öllum sóknagjöldum sem sóknarbörn Hvítasunnukirkjunnar hafa greitt; og enn fremur næstum öllum sóknargjöldum í tvö ár. Hvítasunnukirkjan ætlar að krefjast bóta af framkvæmdastjóranum fyrrverandi. Fréttastofa ræddi í morgun við framkvæmdastjórann fyrrverandi. Hann vildi sem minnst ræða málið, en sagði þó óvíst að hann gæti endurgreitt kirkjunni. Ekki kom fram til hvers hann notaði það. Upp komst um fjárdráttinn þegar gerð var allsherjar endurskoðun á fjárreiðum kirkjunnar. Í ljós kom að ársreikningar kirkjunnar hafa verið byggðir á misvísandi gögnum, gagngert, segir í tilkynningu Hvítasunnukirkjunnar, til að fela fjárdráttinn. Þannig hafi réttum upplýsingum verið haldið frá endurskoðanda kirkjunnar, sem vann reikningana samkvæmt bestu vitund. Málið hefur verið kært til lögreglu. Gísli Freyr Valdórsson, talsmaður Hvítasunnukirkjunnar, segir að framkvæmdastjóranum fyrrverandi verði fyrirgefið.
Mest lesið „Það er erfitt að setja sig í hermannagalla í litlu sveitarfélagi” Innlent Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Erlent Munu leggja fram vísindalegar sannanir fyrir því að Brigitte sé líffræðilega kona Erlent Gekk fram á dauða seli: „Svona á enginn að gera“ Innlent Ráðast á fangaverði og skvetta á þá ýmsum líkamsvessum Innlent Svona gæti Sundabraut litið út: Brú eða göng meðal valkosta Innlent Eltihrellir sat fyrir lögregluþjónum og skaut þrjá til bana Erlent 80.000 lögreglumenn í viðbragðsstöðu vegna boðaðra mótmæla í dag Erlent Hafnar kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar Innlent Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem einangra sig félagslega Innlent Fleiri fréttir Ráðherra boðar stórtækar breytingar og Viðskiptaráð vill finna olíu Hafnar kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar Svona gæti Sundabraut litið út: Brú eða göng meðal valkosta Stefnir í að forystan verði óbreytt Gekk fram á dauða seli: „Svona á enginn að gera“ Vilja byggja nýtt geðsvið við hlið Landspítalans í Fossvogi Íbúar þurfa ekki lengur að sjóða neysluvatn Ráðast á fangaverði og skvetta á þá ýmsum líkamsvessum „Það er erfitt að setja sig í hermannagalla í litlu sveitarfélagi” Helmingur nýrra íbúða óseldur í yfir 200 daga Ógnaði öðrum með skærum 3,6 stiga skjálfti mældist í Vatnajökli Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem einangra sig félagslega Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Ekki eigi að stjórna borginni út frá „pólitískri kreddu“ Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi í vændum Mæður sem taka í vörina á meðgöngu og missáttir leigubílstjórar Björn strax hættur í íþróttaráði: „Þetta var bara prinsippmál“ SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Eins og löglærður forstjóri spítala væri að skera upp sjúklinga Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Eldur í ruslageymslu á Selfossi Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Ók á fimm til sex kyrrstæða bíla Næsta skref að tryggja að próf leigubílstjóra verði alfarið á íslensku Sjá meira