Innlent

ESB og Icesave ekki fyrirstaða

Ögmundur Jónasson kemur á nýjan leik inn í ríkisstjórnina og tekur við embættum dómsmála-, mannréttinda-, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Ég byggi á starfi forvera minna í starfi og alls þess starfsfólks sem vinnur verkin í þessum ráðuneytum," segir Ögmundur.

Icesave-málið, sem olli því að hann sagði sig úr ríkisstjórn fyrir ári, sé nú komið í annan farveg og hvorki það né Evrópumálin muni flækjast fyrir hans starfi í ríkisstjórninni. Spurður hvort breytingarnar séu einkum hugsaðar til þess að friðmælast við hina svokölluðu órólegu deild innan Vinstri grænna, segir Ögmundur annarra að svara því. „En ég er ekkert sérstaklega órólegur maður. Ég er bara fullkomlega rólegur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×