Hverri lundapysju tekið fagnandi 3. september 2010 05:00 Þau Indiana Guðný og Sigþór Yngvi Kristinsbörn fóru með pysjuna í vigtun áður en henni var sleppt. fréttablaðið/óskar
Útlit er fyrir að mjög fáar lundapysjur komist á legg í Vestmannaeyjum í sumar. Egg hafa ýmist verið afrækt eða pysjurnar drepist fljótlega eftir klak í öllum þeim holum sem Náttúrustofa Suðurlands fylgdist með í sumar. Varpárangurinn í Vestmannaeyjum hefur verið slæmur undanfarin ár en aldrei sem nú. Lundaveiði var leyfð í fimm daga í Vestmannaeyjum í ár en lítið var veitt. Varpstofn Vestmannaeyja 2010 er talinn vera um 860 þúsund pör. Ein og ein lundapysja hefur hins vegar skilað sér niður í Vestmannaeyjabæ þessa dagana og má segja að hverri þeirra sé tekið fagnandi. Þau Indiana Guðný Kristinsdóttir og Sigþór Yngvi Kristinsson fundu pysju þar sem Lifrarsamlagið stóð áður. Þau fóru með pysjuna í vigtun og mælingu á Náttúrustofuna og slepptu henni síðan. Indiana segir að í sumar hafi hún og vinir hennar aðeins fundið þessa einu pysju, sem þó var vel haldin og virtist hafa haft nóg að éta. „Í fyrra fundum við miklu fleiri, eitt kvöldið fundum við fimmtán eða tuttugu. Áður fundum við kannski fjörutíu eða fimmtíu á einu kvöldi,“ segir Indiana. - shá
Mest lesið Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Erlent Veittu eftirför í Árbæ Innlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Innlent „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Fleiri fréttir „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Þjófar réðust á starfsmann verslunar Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Íbúasamtök vilja láta endurskoða rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs Víðfeðm rannsókn, baunað á skólaþorp á bílastæði og stórvirki Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma „Enn sem er komið er staðan óbreytt og orð Sönnu ósönn“ Munu geta aðgreint fanga eftir alvarleika brota í nýju fangelsi Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Ólafur Þór segir ekki tilefni til afsagnar Sjá meira