Árni Sigfússon: Segist oft hafa verið bjartsýnni 3. september 2010 14:49 Árni Sigfússon „
Loksins þegar verið er að herða eina skrúfuna í atvinnumálum af mörgum, þá losar önnur hönd ríkisstjórnarinnar aðra jafnóðum," segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um viðbrögð vegna ákvörðunar Kristján Möllers, fyrrverandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, um að heimila flugstjórn að skoða mögleikann á því að skrá herþotufyrirtækið ECA program hér á landi. Samtök Hernaðarandstæðinga brugðust hart við fregnunum í gær en formaður þess, Stefán Pálsson, sagði ákvörðun Kristjáns ótrúlega ósmekklegan kveðjuhrekk. Í kjölfarið fann forsætisráðuneytið sig knúið til þess að senda út fréttatilkynningu þar sem það var áréttað að ákvörðun Kristjáns hefði ekki verið tekin í samráði við forsætis- og fjármálaráðherra. Málið virðist því vera viðkvæmt. Samkvæmt heimildum Vísis þá er grasrót VG beinlínis æf vegna málsins. Aftur á móti er talið að starfsemin muni skapa um 150 störf á Reykjanesinu. Árni segir það afar mikilvægt, ekki síst í ljósi þess að atvinnuleysi á suðurnesjum er gríðarlegt. „Þessi viðbrögð koma mér ekki á óvart. En við erum svo sem vön því," segir Árni sem lítur svo á að stjórnvöld hafi brugðist íbúum Reykjanesbæjar enda hafa orðið miklar tafir á álverinu í Helguvík. Í raun eru tafirnar slíkar að það er óljóst hvort af því verði. Þá hafa verið uppi hugmyndir um einkasjúkrahús, gagnaver og kísilverksmiðju sem ekki hafa gengið eftir. „Þessar herþotur verða vopnlausar, það er annað en þegar herinn var hérna á Miðnesheiðinni," segir Árni og bendir á að störfin sem skapist eru fjölbreytt, fái ECA að starfa hér á landi það er að segja. Reykjanesbær hefur átt í miklum efnahagsvandræðum undanfarið og er svo komið að sveitarfélagið fékk athugasemd frá yfirvöldum vegna slæmrar fjárhagsstöðu. „Þetta er bagalegt þegar önnur hönd ríkisstjórnarinnar slær á öll verkefni og atvinnuuppbyggingu á meðan hin réttir okkar bréf um að gera eitthvað í okkar skuldamálum," segir Árni. Aðspurður hvort hann sé bjartsýnn svarar hann: „Ég hef oft verið bjartsýnni. En við erum ekki búin að gefast upp." Ögmundur Jónasson er nýr samgöngu- og sveitastjórarráðherra. Hann sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag: „Ef þetta er skaðlaus starfsemi sem uppfyllir allar kröfur og er í samræmi við okkar stjórnsýslu, þá er ekki óttast. En ef svo er ekki þá verða leyfin ekki veitt, en við skoðum þetta málefnalega og komumst að niðurstöðu í kjölfarið."
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira