Innlent

Enn haldið sofandi í öndunarvél

Ungum manni er enn haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys við Nýbýlaveg í nótt. Fimm ungmenni voru í bílnum og slösuðust tvö þeirra alvarlega.

Slysið varð á mótum Hafnarfjarðarvegar og Nýbýlavegar í Kópavogi. Bifreiðinni var ekið eftir Hafnarfjarðarvegi til suðurs þegar ökumaður missti stjórn á henni og hún endastakst á milli akbrautanna og niður á Nýbýlaveg. Þar hafnaði hún á hvolfi.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að kannað sé hvort ofsaakstur hafi valdið slysinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×