Innlent

Hreyfingin segir fjórflokkinn ekkert hafa lært af hruninu

Þingmenn Hreyfingarinnar telja frumvarp um fjárframlög til stjórnmálaflokka ekki til fyrirmyndar
Þingmenn Hreyfingarinnar telja frumvarp um fjárframlög til stjórnmálaflokka ekki til fyrirmyndar Mynd: Vilhelm Gunnarsson

Þingmenn Hreyfingarinnar telja hina stjórnmálaflokkana ekki hafa lært af hruninu. Til marks um það segja þeir hvernig frumvarp um breytingar á lögum um fjárframlög til stjórnmálaflokka sé keyrt í gegn um þingið

Frumvarpið var lagt fram af formönnum hinna þingflokkanna; Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks, Framsókn og Vinstri grænna

Samkvæmt því er gert ráð fyrir að framlög einstaklinga til stjórnmálamanna og stjórnmálasamtaka megi áfram vera nafnlaus og að fyrirtækjum sé áfram heimilt að styrkja stjórnmálamenn og flokka.

Þingmenn Hreyfingarinnar, Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir og Birgitta Jónsdóttir, segja frumvarpið ekki hafa fengið efnislega umfjöllun í meðferð Allsherjarnefndar og að ekki hafi verið orðið við beiði Hreyfingarinnar um að gestir kæmu á fund nefndarinnar vegna málsins.

Frumvarpið er til annarrar umræðu á Alþingi í dag og fyrirhugað er að það verði að lögum síðar í þessum mánuði.

„Vinnulag við þetta frumvarp er skýrt dæmi um að Alþingi ætlar ekki að taka tillit til vinnu Rannsóknarnefndar Alþingis og þeirra niðurstaðna sem fram koma í skýrslu hennar," segir í tilkynningu sem þingmenn Hreyfingarinnar hafa sent fjölmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×