Lúsin komin á stjá 3. september 2010 19:11
Til stendur að rannsaka íslensku lúsina í fyrsta sinn, en flest bendir til að höfuðlúsin sé orðin ónæm fyrir lúsalyfjum og að eina ráðið til að losna við hana sé að kemba hárið vandlega. Höfuðlúsin er lítið skorkvikindi sem lifir á að sjúga blóð úr hársverðinum. Lúsin hefur sex fætur og klær til að komast um í hárinu og getur skriðið allt að 30 sentimetra á mínútu. Hún er fullvaxin um það bil 3 mm að stærð, glær, gráhvít eða ljósbrún á lit. Smitleið lúsarinnar er snerting höfuðhárs. Nú er aðeins rúm vika frá því að skólarnir byrjuðu og strax eru farnar að heyrast lúsasögur. En hvers vegna kemur lúsin alltaf upp á haustin? „Lúsin hefur verið í dvala frá haustinu. Hún er þá í höfðinu á einhverjum börnum eða fullorðnum. Fullorðnir hafa tilhneigingu til þess að líta á höfuðlús sem sérstakt barnaverndarmál," segir Ása Steinunn Atladóttir, hjúkrunarfræðingur á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins. Hún segir misjafnt hversu mörg tilfelli komi upp á ári hverju, en embættið hafi fengið vitneskju um allt að 500 smit á einu ári. Langflestir sem smitast hafi engin einkenni. „Ef að þú færð kláða þá ertu búin að vera með lúsina ansi lengi," segir Ása Steinunn. Hægt er að losna við lús með reglubundinni kembingu með lúsakambi eða nota lúsalyf með. Ása Steinunn segir að best sé að nota kambinn því erlendar rannsóknir sýni að lúsin er orðin nær ónæm fyrir lyfjunum. Til stendur að rannsaka íslensku lúsina en slík rannsókn hefur ekki verið framkvæmd áður. „Til stendur að kanna bæði útbreiðsluna á Íslandi og hvernig þetta hefur gengið hingað til og hvort að okkar lús sé næm fyrir þessum helstu lúsaefnum," segir Ása Steinunn.
Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira