Gapandi brunarúst kvelur fjölskylduna 3. september 2010 06:15 Hverfisgata 28. Staðurinn þar sem 25 ára gamall maður fórst í eldsvoða blasir enn óhreyfður við, átta mánuðum eftir hinn voveiflega atburð.Fréttablaðið/GVA „
Ósk mín er að gengið sé til þess að rífa þetta hús sem fyrst," segir frænka manns sem fórst í eldsvoða á Hverfisgötu í ákalli til Jóns Gnarr borgarstjóra. Konan segir frá því í bréfinu til borgarstjórans að 25 ára maður sem lést í brunanum á Hverfisgötu aðfararnótt 7. janúar síðastliðinn hafi verið frændi borgarstjórans. Sá sem lést hafi borið mikla virðingu fyrir Jóni og hún voni að hann beiti sér fyrir því að húsið verði rifið. Að sjá húsið ennþá svart og sótugt valdi fólki enn meiri sorg en orðin er. „Virðing og frændsemi sé að húsið verði rifið, ekki bara fyrir miðbæ Reykjavíkur heldur fjölskylduna sem í raun fær ekki frið fyrr en eitthvað hefur verið gert í þessu máli," segir í bréfi konunnar sem Fréttablaðinu hefur ekki tekist að ná tali af og er því ónefnd hér. „Húsið stendur ennþá hálfbrunnið og skemmt líkt og hræ, eins og það var strax eftir brunann. Gapandi upp í loftið, brunnar þaksperrur sem blasa við öllum sem eiga leið þarna framhjá," segir enn fremur í bréfi konunnar. Frá skrifstofu borgarstjóra var erindið sent til meðferðar hjá framkvæmda- og eignasviði. Málið er nú til skoðunar hjá byggingarfulltrúa. Magnús Sædal byggingarfulltrúi segir ófært að brunahúsið haldi áfram að vera í núverandi ömurlegu ástandi. Eigandinn hafi engar tillögur sett fram til hans embættis um framtíð eignarinnar. „Húsið er talið viðgerðarhæft að mati tryggingarfélaga. Það hefur ekkert verið ákveðið enn af hálfu borgaryfirvalda í þessu máli en væntanlega munu þau gera kröfu um að eigandinn hefji viðgerðir á húsinu og það mál fái þannig farsælan endi," segir Magnús Sædal. gar@frettabladid.is
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira