Nýbyggð hjúkrunarrými ekki nýtt vegna fjárskorts Erla Hlynsdóttir skrifar 3. september 2010 16:02 Dvalarheimilið Jaðar á Ólafsvík fær ekki að nýta öll hjúkrunarrými í nýju húsnæði vegna fjárskorts
Framkvæmdum er að ljúka vegna viðbyggingar við dvalarheimilið Jaðar í Ólafsvík og var gert ráð fyrir að þar væri hægt að bæta við tólf hjúkrunarrýmum áður en árið er úti. Stjórn dvalarheimilisins sótti um leyfi fyrir þeim rýmum til félags- og tryggingamálaráðuneytisins en hefur nú borist bréf þar sem aðeins er veitt leyfi fyrir tíu rýmum. Ef það er endanleg niðurstaða er ljóst að dvalarheimilið situr uppi með tóm hjúkrunarrými á sama tíma og fólk er á biðlista vegna þeirra rýma. Inga Kristinsdóttir, forstöðumaður dvalarheimilisins Jaðars, segir ákvörðun ráðuneytisins vissulega vonbrigði. „Þetta er auðvitað ekki gott. Við vorum búin að gera ráð fyrir þessum rýmum en til þess þarf fjárveitingu.," segir hún. Inga segir að nú um miðjan mánuðinn verða sjö á biðlista vegna dvalarrýmis og er einn þegar á biðlista vegna hjúkrunarrýmis. Spurð í hversu brýnni þörf þeir einstaklingar séu fyrir pláss segir hún: „Fólk er ekki að sækja um nema það hafi mikla þörf." Inga bendir á að hún hafi einnig sótt um fjölgun dvalarrýma. Þau eru nú fimm en hún óskaði eftir sjö til viðbótar. Því var einnig hafnað. Hún harmar niðurstöðuna sérstaklega í ljósi þess að þarna hafi heimafólk bundið miklar vonir við að komast inn á dvalarheimili í heimabyggð. Inga segir að á síðustu árum séu dæmi um að íbúar á Ólafsvík hafi þurft að fara á dvalarheimili í öðrum sveitarfélögum þar sem engin aðstaða var í heimabænum. „Nú er aðstaðan komin og þá er ömurlegt að geta ekki nýtt hana til fulls," segir hún. Inga hefur þó sannarlega ekki gefið upp vonina. „Ég ætla ekki að vera svartsýn. Það er auðvitað niðurskurður í þessum málaflokki um allt land en við höldum áfram að berjast fyrir þessu," segir hún. Bæjarráð Snæfellsbæjar tók málið fyrir á fundi sínum í síðstu viku og bókaði að niðurstaðan væri hörmuð mjög, sér í lagi þar sem Snæfellsbær og ráðuneytið hafa þegar sett tæpan hálfan milljarð í verkefnið en nú er ljóst að niðurstaðan er önnur en lagt var upp með. „Forsendur þess þegar farið var að stað með verkefnið voru þær að byggja hjúkrunarrými fyrir 12 einstaklinga. Út frá þeim forsendum gekk Snæfellsbær þegar tekin var sú ákvörðun að setja fjármagn í verkefnið, enda hefði verið eðlilegra ef einungis ætti að vera leyfi fyrir 10 hjúkrunarrýmum að verkið hefði verið miðað við það. Bæjarráð Snæfellsbæjar skorar á ráðherra að endurskoða afstöðu sína með tilliti til þeirra forsenda sem farið var af stað með þegar hafist var handa við bygginguna," segir í bókuninni. Þar var einnig tekið fram að bæjarfélagið hefur undanfarna áratugi ekki getað sinnt öllum þeim einstaklingum sem þurft hafa á þessari þjónustu að halda og þeir því þurft að sækja hana í önnur bæjarfélög. Nýja húsnæðið hafi gefið von um að fólk geti í auknum mæli sótt þá þjónustu sem þeir þurfa í heimabyggð.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira