Ráðherraskiptin kosta almenning milljónir 3. september 2010 18:18
Kostnaður vegna biðlauna við ráðherraskiptin nemur á þriðja tug milljóna króna. Ýmislegt er þó enn á huldu við skiptin þar sem ólíklegt þykir að nýir ráðherrar vilji hafa tvo ráðherrabílstjóra. Réttur ráðherra til biðlauna er annað hvort þrír mánuðir eða sex. Það fer eftir því hvort þeir hafi gengt starfinu í ár eða skemur. Ragna Árnadóttir, fráfarandi dómsmálaráðherra, og Gylfi Magnússon, fráfarandi efnahags- og viðskiptaráherra, hafa gengt starfinu frá því í febrúar 2009 og hafa því starfað lengur en í ár. Þau eiga því rétt á biðlaunum í sex mánuði en biðlaun eru jafnhá ráðherralaunum. Laun ráðherra eru 855 þúsund krónur og má því ætla að þau muni samanlagt þiggja rúmlega 10,2 milljónir í biðlaun. Kristján Möller, fráfarandi samgönguráðherra, hefur gegnt ráðherraembætti frá því í maí 2007 og mun því frá greidd ráðherralaun í sex mánuði eins og Ragna og Gylfi. En þau nema rúmlega 5 milljónum. Álfheiður Ingadóttir tók við embætti heilbrigðisráðherra í október 2009 og hefur því aðeins rétt til biðlauna ráðherra í þrjá mánuði. Þau nema rúmlega tveimur og hálfri milljón. Þó skal nefna að þau tvö síðarnefndu munu áfram gegna þingmennsku og mun þingfarakaup þeirra því dragast frá þeim kostnaði. Heildarupphæð biðlauna þeirra tveggja nemur því um þremur milljónum.Ögmundur Jónsson tók í gær við sem samgönguráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra.Samanlagt munu biðlaun þessara fjögurra ráðherra því nema rúmlega 13 milljónum. Þá á eftir að telja laun ýmissa starfsmanna ráðuneytanna sem tapast við sameiningu ráðuneyta. Þannig missa aðstoðarmenn fyrrverandi ráðherra vinnuna en grunnlaun þeirra eru 659 þúsund krónur. Þeir hafa rétt á biðlaunum í þrjá mánuði. Og því mun kostnaðurinn við biðlaun þeirra nema um átta milljónum. Þá er ljóst að biðlaun vegna ráðherraskiptana geta numið um það bil 21 milljón. Hins vegar er ýmis kostnaður vegna sameiningar ráðuneytanna enn á huldu. Til að mynda þykir ólíklegt að Guðbjartur Hannesson, sem tekur við félagsmálaráðuneytinu sem og heilbrigðisráðuneytinu, vilji hafa tvo ráðherrabílstjóra. Sömu sögu er að segja um Ögmund Jónasson, sem hefur tekið við lyklum að ráðuneyti dómsmála og svo lyklum í samgönguráðuneytinu. Stefnt er að frekari sameiningu ráðuneytanna eftir áramót.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira