Innlent

Barist um bitana hjá Vegagerðinni

Verktakar heyja óvenju harða baráttu um þau fáu verk, sem Vegagerðin býður út og nýjasta dæmi um það er að verktaki bauðst til að vinna tiltekið verk fyrir rétt liðlega helming af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.

Áætlun gerði ráð fyrir að verkið kostaði röskar 82 milljónir króna, en lægsta tilboð var upp á rúmar 43 milljónir, eða 52,6 prósent af kostnaðaráætlun.

Átta önnur tilboð voru líka vel innan áætlunar. Á þensluárunum voru tilboð í ámóta verk jafnan um, eða vel yfir kostnaðaráætlunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×