Innlent

Aska frá jöklinum berst yfir höfuðborgarsvæðið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Höfuðborgarsvæðið. Mynd/ GVA.
Höfuðborgarsvæðið. Mynd/ GVA.
Aska frá svæðinu í kringum Eyjafjallajökul berst um þessar mundir yfir höfuðborgarsvæðið en hvöss suðaustlæg átt er ríkjandi á Suðurlandi. Svifryk hefur því aukist hratt síðustu klukkustundir og er líklegt að hálftímagildi geti verið yfir mörkum af og til.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Heilbrigðiseftirlitinu þykir ástæða til að benda þeim á sem eru með viðkvæm öndunarfæri s.s. lungnasjúkdóma eða astma að vera innandyra og bendir á leiðbeiningar á heimasíðu Umhverfisstofnunar um hvernig bregðast skuli við menguna af völdum öskufoks.

Eftir því sem Vísir kemst næst lá öskuslikja yfir bílum á Hvolsvelli í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×