Innlent

Mótmæla hækkunum Orkuveitunnar

Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla áhrifum af hækkunum Orkuveitu Reykjavíkur um rúm 28 prósent nýverið.

Hækkunin hafi ekki einungis áhrif á vísitöluna, sem hækki höfuðstól lána og þar með afborganir af lánum, heldur muni fyrirtæki, sem nota orku, telja sig þurfa að hækka verð á vörum og þjónustu, sem enn hækki vísitöluna.

Þá er skorað á samkeppnisyfirvöld að rannsaka hversvegna dreifingin, sem sé í einokun, hækki mun meira en orkan sjálf, sem sé seld í samkeppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×