Greiðslur til bænda rangfærðar í bókhaldi ríkisins Erla Hlynsdóttir skrifar 3. september 2010 13:07 Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið þarf að sinna betur eftirliti með greiðslum til sauðfjár-, garðyrkju- og kúabænda
Í nýrri skýrslu Rikissendurskoðunar um framkvæmd búvörusamninga er gagnrýnt að hluti greiðslna til bænda sé rangfærður í bókhaldi ríkisins og lögð áhersla á að útreikningar að baki greiðslunum séu gagnsærri. Á undanförnum árum hafa stjórnvöld gert nokkra samninga við hagsmunasamtök bænda um fjárhagslegan stuðning ríkisins við landbúnað. Um er að ræða styrki til sauðfjárbænda, kúabænda og garðyrkjubænda. Bændasamtök Íslands hafa séð um að greiða bændum út styrkina og annast aðra umsýslu samninganna. Í skýrslunni kemur fram að greiðslur til sauðfjár- og garðyrkjubænda hafi að mestu verið í samræmi við ákvæði samninga og síðari breytingar á þeim. Þá kemur fram að hluti greiðslna til sauðfjár-, garðyrkju- og kúabænda hafi verið rangt færður í bókhaldi ríkisins og átelur Ríkisendurskoðun landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið fyrir þetta. Í kjölfar athugasemda stofnunarinnar hefur ráðuneytið nú breytt verklagi sínu til að koma í veg fyrir villur af þessu tagi. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf ráðuneytið að sinna betur eftirliti með framkvæmd búvörusamninga og greiðslum vegna þeirra. Þá þarf ráðuneytið að auka gagnsæi útreikninga sem búa að baki þessum greiðslum svo að þingmenn, eftirlitsaðilar og almenningur eigi auðveldara með að glöggva sig á þeim. Loks telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að gerðir verði formlegir samningar um þóknanir sem ríkið greiðir Bændasamtökum Íslands fyrir umsýslu samninganna Þess má geta að skýrslan er sú fyrri af tveimur sem gefnar verða út og birta niðurstöður athugunar Ríkisendurskoðunar á framkvæmd búvörusamninga.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira